viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það var ekkert að ástæðulausu sem við söltuðum ETS2 á síðasta þingi. Og eins og nefndarmenn í atvinnuveganefnd, hv. þingmenn, þekkja þá var þetta mál ekki sett í neinn forgang. Ég veit ekki til þess að margir umsagnaraðilar hafi einu sinni verið kallaðir til vegna þess að það var einfaldlega tekin ákvörðun um að það væri réttara að bíða. En ég held að sú umræða sem fór fram hér í þingsal um málið hafi verið holl og eflaust er margt ágætt sem sem hv. þingmaður benti á í umræðunni á sínum tíma.
Varðandi ETS-kerfið almennt þá er kannski ágætt að hafa það í huga að kolefnisgjöld á Íslandi eru reyndar nú þegar hærri, og voru orðin það þegar þessi ríkisstjórn tók við, en sem nemur meðalverði kerfisins þannig að það er ekki augljóst að innleiðing kerfisins, ef það er gert í góðu samspili við kolefnisgjöldin og gætt að jafnvægi þar — það er ekki einboðið að það sé beinlínis íþyngjandi ef það er stillt rétt af, en þetta er eitt af því sem við erum að skoða. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að við erum ekki að þjösnast áfram og gerðum það heldur ekki á síðasta þingi með ETS2-kerfið. Það er rétt að flýta sér hægt, skoða hvernig þetta er innleitt annars staðar og vinna mjög vel samspilið milli þessara kerfa og svo kolefnisgjaldanna. Sú vinna er í gangi innan Stjórnarráðsins. Við höldum svo áfram gagnvart Evrópusambandinu, að berjast fyrir því að sanngirni sé gætt gagnvart Íslandi og okkar landfræðilegu stöðu. Það er eilífðarviðfangsefni.