157. löggjafarþing — 22. fundur,  21. okt. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[19:58]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmönnum fyrir þessa ágætu umræðu. Mig langaði rétt að koma hérna upp vegna þeirrar ræðu sem hv. þm. Sigríður Á. Andersen flutti rétt í þessu og árétta að það er alveg rétt að á vettvangi Evrópusambandsins er gerð krafa um að ríki afmarki ETS-tekjur til loftslagsverkefna. En Ísland og Noregur eru með undanþágu frá þeirri kvöð þannig að tekjurnar renna í rauninni beint í ríkissjóð, þessar ETS-tekjur. Hv. þingmaður ætlaði að kalla eftir upplýsingum um heildarfjárhæðir o.s.frv. og ég hvet hana eindregið til þess. Það er okkur ljúft og skylt að taka saman þau gögn um það sem ég er með hérna fyrir framan mig. Það var tekið saman síðast fyrir nokkrum mánuðum í ráðuneytinu að á tímabilinu 2019–2023 námu samanlagðar tekjur ríkissjóðs af sölu losunarheimilda u.þ.b. 19 milljörðum kr. Þá skýrast að hluta til mjög háar tekjur á árunum 2019–2020 af sölu uppsafnaðra heimilda allt frá árinu 2013. Hreinar tekjur á sama tímabili voru 13,4 milljarðar þegar tekið hefur verið tillit til fjárframlaga til umhverfismála vegna ráðstöfunarheimildanna í samræmi við sveigjanleikaákvæði í reglugerð Evrópusambandsins þar sem er verið að færa ákveðna losun milli losunarflokka. Þetta er sem sagt þessi ETS-losunarflokkur.

Svo er það hitt sem hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu, ESR-hlutinn. Það gerðist 2019–2020 að það var samþykkt hér í þessum sal, merkilegt, með atkvæðum frá þingmönnum allra flokka að kröfur um hertan samdrátt í samfélagslosunarhlutanum voru líka felldar inn í EES-samninginn. Þar geta í rauninni líka komið til fjárhagslegar skuldbindingar, ólíkt því sem t.d. gildir um Parísarsamstarfið. Þess vegna skiptir miklu að ná niður losuninni þar. Það skiptir ekki síður máli að halda áfram að berjast fyrir hagsmunum Íslands í þessu loftslagssamstarfi við Evrópusambandið og tryggja að gætt sé að sérstöðu okkar í þessu samstarfi sem hefur nú þegar verið fellt inn í EES-samninginn. Ég treysti því að það verði áfram mikil samstaða um það í þessum sal að gera það.