Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær varð alvarlegt áfall á Grundartanga sem snertir ekki aðeins fyrirtækið heldur allt nærsamfélagið og einn af grundvallaratvinnuvegum landsins. Í Norðuráli hefur verið stöðvuð framleiðsla og afkastageta hefur skerst um tvo þriðju um óákveðinn tíma. Þetta hefur gríðarleg áhrif á fólk og fyrirtæki og þarna munu tapast útflutningstekjur upp á tugi milljarða. Þetta alvarlega slys er því miður áminning um mikilvægi öflugs atvinnulífs enda byggja lífskjör okkar á öflugri framleiðslu og útflutningi. Á Grundartanga verða til verðmæti sem nema umtalsverðu hlutfalli af útflutningstekjum Íslands og þegar sú lífæð þrengist þá finnur allt hagkerfið fyrir því.
Við megum ekki gleyma að verðmætasköpunin er grunnur velferðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn stendur með fólkinu á Grundartanga og öllum greinum sem halda landinu gangandi. Við stöndum vörð um fjölskyldur og fyrirtækin í landinu en síðastliðið ár er eina svar ríkisstjórnarinnar að hækka álögur á þessa aðila.
Frú forseti. Ég óska eftir sérstakri umræðu við hæstv. forsætisráðherra um stöðu efnahagsmála. Ríkisstjórnin þarf að svara því skýrt hvernig verði brugðist við þegar ný áföll dynja yfir; loðnuveiði er óviss, horfur í kolmunna og makríl eru daprar, kísilver PCC á Bakka er lokað tímabundið, um 600 manns hafa misst vinnuna eftir gjaldþrot Play og nú liggur hluti starfsemi Norðuráls niðri. Hvernig verjum við verðmætasköpunina í landinu, störfin og traust heimilanna? Við biðjum ekki um skyndilausnir heldur hreinskilni, skýr svör og ábyrgð. Það er forysta og það er vegurinn út úr óvissunni.