157. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:03]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Hvað er það sem stuðlar að betri líðan barna, öflugri námsárangri, sterkari félagslegum tengslum og aukinni samheldni fólks af ólíkum uppruna? Jú, kæri þingheimur, það er fjárfesting í íþróttastarfi ungmenna. Slík fjárfesting er ein sú besta forvörn sem völ er á og rannsóknir benda til þess að allir fjármunir sem við veitum í þá átt skili sér margfalt til baka. Þrátt fyrir þetta virðist sókn í málaflokknum standa á sér og það hryggir mig því á meðan við erum ekki að sinna þessum forvörnum þá versnar andleg líðan ungmenna. Biðlistar í úrræði lengjast og agamál, líkt og þau hræðilegu agamál sem við heyrðum af í vikunni frá kennurum um ofbeldi í skólum, eru líklegri til að ágerast.

Virðulegur forseti. Það er þetta sem við verðum að hafa í huga því ef við erum ekki að styðja við forvarnir og styrkja íþróttahreyfinguna þá erum við augljóslega á rangri leið. Hér verðum við að hafa í huga að rekstur margra minni félaga hringinn í kringum landið stendur illa eins og Ungmennafélag Íslands hefur ítrekað bent á. Ungmennafélagshreyfingin hefur kallað eftir samtali við ríkisstjórnina um fjármagn, um skýrar aðgerðir og um samvinnu að settu marki. Ég segi: Kæra ríkisstjórn. Ef ykkur er raunverulega alvara í því að bæta líðan barna þá hvet ég ykkur til að funda og ræða við ungmennafélagshreyfinguna því það er hreyfing sem hefur leikið lykilhlutverk þegar kemur að því að byggja upp okkar þrek og dug og hún veit sínu viti, enda er hún að byggja á (Forseti hringir.) sannreyndum aðferðum. Köstum ekki krónunni fyrir aurinn, sýnum heldur öflugan stuðning við íþróttastarf og ræktum þannig líf og land, (Forseti hringir.) eins og Ungmennafélag Íslands myndi orða það.

(Forseti (ÞSv): Forseti vill minna þingmenn á að ávarpa ávallt forseta.)