Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær ræddi ég í störfum þingsins um nauðsyn þess að ríkisstjórnin leggi fram eins fljótt og kostur er boðuð áform um hagræðingu. Það er ein af forsendum þess að við náum viðunandi árangri í ríkisfjármálum á næstu árum. Það má ekkert út af bregða. Mikil óvissa er í alþjóðamálum og hefur þessi óvissa m.a. áhrif á stöðu ferðaþjónustunnar og háir vextir munu smám saman gera út af við skuldsett fyrirtæki og háir vextir kæfa nýsköpun.
Umræðan um efnahagsmál má ekki snúast eingöngu um að stefna á minni fjárlagahalla og að hagræða. Það er ekki nóg að ákveða markmið á blaði eða í fjárlögum, við verðum líka að tryggja að framkvæmdin fylgi. Framkvæmd fjárlaga á Íslandi hefur um árabil verið veikur hlekkur í opinberri fjármálastjórn. Frávik milli áætlana og rauntalna hafa verið umtalsverð ár eftir ár og raunar áratugum saman. Vitanlega hafa áföll og náttúruhamfarir haft sitt að segja, m.a. jarðhræringar á Reykjanesskaga og Covid-tímabilið, svo dæmi séu nefnd. Það breytir því ekki að hinn almenni ríkisrekstur er ekki nægilega agaður. Þessi frávik áætlana og rauntalna grafa undan trúverðugleika fjárlaga og draga úr trausti á efnahagsstjórninni. Ábyrg hagstjórn felst ekki aðeins í að hagræða heldur að fylgja áætlun og halda aga í ríkisrekstri. Hugsanlega þurfum við að eiga sérstaka umræðu um hvernig stjórnvöld geta bætt framkvæmd fjárlaga, dregið úr frávikum, eflt eftirlit með útgjöldum og það er forsenda þess að hagræðing skili árangri. Framsókn hefur alltaf staðið vörð um jafnvægi milli hagvaxtar og velferðar, milli aga og sveigjanleika. Við viljum sjá efnahagsstjórn sem byggir á ábyrgð, festu og framtíðarsýn þar sem fjárlög og framkvæmd eru framkvæmd af aga og trúverðugleika.