157. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2025.

Störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. 50 ár, hálf öld, verða á föstudag liðin frá því að kvennafrídagurinn var haldinn á því herrans ári 1975. Eftir því sem lengra hefur liðið frá þessum mikilvæga atburði áttar sá sem hér stendur sig á því hversu gríðarleg söguleg kaflaskil urðu með þessum atburði árið 1975. Allt opnaðist í samfélaginu. Allt varð frjálsara og var tími til kominn. Þessi mikli atburður ruddi á undan sér gríðarlegum breytingum í samfélaginu. Það er engin tilviljun að Samtökin '78 voru stofnuð þremur árum síðar. Það er engin tilviljun að fyrsti kvenforseti á jörðinni var kosin fimm árum síðar. Það er engin tilviljun að flokkakerfið byrjaði riðlast og flosna upp á nýjum áratug og undir lok þess áratugar, árið 1995, var einokun ljósvakans afnumin og frjálst útvarp varð til og frjálst sjónvarp varð til. Það varð allt frjálsara eftir að kvennafrídagurinn varð partur af Íslandssögunni og er það vel vegna þess að við fórum úr staðnaðri, karllægri stjórnsýslu, flokkshygli og frændhygli og inn í frjálsara samfélag. Okkur veitti ekki af þessu sparki í rassinn sem kvennafrídagurinn var. Hann opnaði augu alls samfélagsins á því að jafnrétti bætir samfélag til allra muna. Frelsi fólks bætir samfélag til allra muna. Þetta var vakning og hún stendur enn þá yfir og ég segi við konur þessa lands: Til hamingju enn þann dag í dag. Og ekki síður við karla: Til hamingju sömuleiðis því að ykkur veitti ekki af þessu á sínum tíma og ykkur veitir ekki enn þá af þessu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)