Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag, á bleika deginum, sameinumst við í von og styrk í baráttu okkar við krabbamein. Þennan dag klæðum við okkur í bleikt, berum bleiku slaufuna og lýsum upp umhverfið í bleikum lit. Það minnir okkur á að lífið er þess virði að lifa, líka á þeim dögum sem eru þungir. Með því að bera bleikan lit sýnum við að umhyggja skiptir máli. Eins og segir á síðu Krabbameinsfélagsins, með leyfi forseta: „Það er list að lifa með krabbameini.“
Bleiki dagurinn minnir okkur á mikilvægi þess að standa saman í baráttunni gegn krabbameini, að sýna stuðning við öll sem greinst hafa og ekki síður við fjölskyldur þeirra og ástvini því að enginn stendur einn í slíkri baráttu. En bleiki dagurinn er líka áminning um forvarnir og skimun. Við vitum að snemmtæk greining getur bjargað lífi. Þess vegna skiptir máli að mæta þegar boð berast í skoðun, hvort sem það er í leghálsskimun, brjóstaskoðun eða ristilskimun. Það tekur stuttan tíma en getur haft áhrif til lífstíðar. Við vitum aldrei hver verður næstur og þess vegna skiptir hvert skref, hver skimun og öll þessi vitundarvakning miklu máli.
Virðulegur forseti. Að lokum vil ég tileinka þessa ræðu tengdamóður minni sem greindist með krabbamein aðeins 55 ára gömul. Hún barðist af æðruleysi og krafti í 11 ár áður en hún kvaddi. Minning hennar lifir með fjölskyldu og vinum sem tákn um styrk, kjark og óbilandi von. Á bleika deginum minnist ég hennar og allra þeirra sem háð hafa þessa baráttu. Við stöndum saman í baráttunni við krabbamein nú sem aldrei fyrr.