Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég vil fá að nýta tækifærið hér í dag og ræða mál sem hefur verið mér hugleikið um nokkurt skeið, alveg frá því löngu áður en ég settist á þing og hefur jafnvel sært svolítið réttlætiskennd mína og ég tel kominn tíma á að endurskoða. Það er hin svokallaða 70 ára regla í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt núgildandi lögum ber stjórnvöldum að segja embættismönnum og starfsmönnum ríkisins upp störfum þegar þeir ná sjötugu án tillits til hæfni, vilja eða starfsgetu. Það er að mínu mati, virðulegi forseti, löngu orðið úrelt.
Árið 2018 voru samþykkt lög á Alþingi um jafna meðferð á vinnumarkaði þar sem kveðið er á um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, aldri og fleiri þáttum. 12. gr. þessara laga kveður hins vegar á um að mismunandi meðferð vegna aldurs teljist ekki brjóta gegn lögum þessum séu færð fyrir henni málefnaleg rök sem helgast af lögmætu markmiði. Að mínu mati uppfyllir það ekki þetta skilyrði laganna að setja bara blátt bann við opinberum starfsmönnum yfir sjötugu í lögum um opinbera starfsmenn. Æviár okkar hafa lengst, heilsa og virkni hefur batnað og stór hluti þeirra starfa sem ríkið sinnir byggist í dag á reynslu og þekkingu fremur en líkamlegu atgervi. Það er því ekki aðeins óréttlátt heldur líka órökrétt að víkja fólki úr starfi einungis vegna aldurs. Með því að segja nei við starfskröftum fólks sem bæði getur og vill vinna áfram erum við ekki aðeins að gera einstaklingnum rangt til heldur tel ég líka að samfélagið sjálft tapi. Í Danmörku var sambærileg regla afnumin fyrir tíu árum síðan og ég tel kominn tíma á að við gerum slíkt hið sama.
Ég ætla mér að leggja fram þingmál þess efnis að breyta eða fjarlægja þessi ákvæði um 70 ára regluna og þar sem ég trúi á gott samstarf um góð málefni hér í þinginu þá biðla ég til allra sem hafa áhuga á þessu máli að tala við mig og jafnvel gerast meðflutningsmenn.