Störf þingsins.
Frú forseti. Fyrir nokkrum vikum síðan var kynnt skýrsla samráðshóps þingmanna um inntak og áherslur og stefnu í varnar- og öryggismálum. Að mínu mati er um að ræða mikilvæga umfjöllun í skýrslunni um mikilvægt málefni og þetta er góð umfjöllun um öryggis- og varnarmál.
Ég hef úr þessum stól áður fjallað um nauðsyn þess að skilgreina þær starfsstéttir á Íslandi og eftir atvikum mannvirki sem þyrfti að skoða betur skilgreiningu á ef við myndum vera í stríðsástandi. Ég er fyrst og fremst að tala um lögreglu og starfsmenn Landhelgisgæslu og eftir atvikum líka einhver mannvirki á vegum þessara stofnana. Það er þannig víða í Evrópu að lögreglulið hafa tvenns konar bakgrunn: Annars vegar er um að ræða ríkislögreglu í viðkomandi löndum og síðan lögreglu sem hefur bakgrunn í her. Það lögreglulið hefur þá gjarnan hlutverk bæði þegar um er að ræða ófriðartíma og friðartíma. Ég held að það mætti horfa til skilgreiningar á þessum lögregluliðum varðandi það hvernig við þyrftum að skilgreina hlutverk lögreglu og Landhelgisgæslu á ófriðartímum. Ég hvet til þess að við bíðum ekki og förum að skilgreina þetta þegar og ef til þess kemur að það verði ófriður heldur að við gerum þetta hratt. Bjarni Már Magnússon, prófessor við Háskólann í Reykjavík, hefur jafnvel lagt til að stofna til hers á Íslandi. Það er auðvitað eitthvað sem fólk getur haft mismunandi skoðun á. Ég er ekkert endilega á þeirri skoðun en ég held að það sé mikilvægt að við skilgreinum í okkar herlausa landi hlutverk þeirra starfsstétta sem koma til með að standa vaktina þegar og ef til þess kæmi að hér yrði gerð innrás.