aðgerðir vegna skatta- og gjaldahækkana.
Virðulegur forseti. Eins og fram kom í máli formanns Sjálfstæðisflokksins áðan þá hefur myndast grafalvarleg staða á Grundartanga. Starfsemi álverksmiðjunnar Norðuráls er stórlega skert og lítur út fyrir að það geti orðið um bara mjög langan tíma. Óvissan er alger, framtíðin er óráðin. Það getur enginn sagt til um framhaldið. Efnahagsleg áhrif af þessu verða stórkostleg. Þarna er um að ræða, ef mér reiknast rétt til, svona nálægt 6% af útflutningsverðmæti landsins sem er búið að loka fyrir frá og með deginum í gær. Vinnumarkaður, atvinnuleysi, það er óráðið. Áhrif á verðbólgu eru líka óráðin en nokkuð augljós. 35 MW af raforku flæða núna ónotuð um kerfið. Hver ber kostnaðinn af því? Og hvert er svar ríkisstjórnarinnar við alvarlegri stöðu atvinnulífsins? Það eru skatta- og gjaldahækkanir á ýmsar atvinnugreinar, þar á meðal höfuðatvinnugreinar okkar og ekki síður á almenning í landinu. (Forseti hringir.) Svarið núna á auðvitað að vera að það þarf að örva fjárfestingar, það þarf að létta á gjöldum og greiða fyrir auknum fjárfestingum í sjávarútvegi, í ferðaþjónustu og innviðafjárfestingum, (Forseti hringir.) ýmislegt sem ríkisstjórnin getur beitt sér fyrir. Það þarf að hleypa lífi eins og hægt er (Forseti hringir.) í vinnumarkaðinn til að bregðast við þessu. Ég hef óskað eftir fundi í atvinnuveganefnd á morgun sérstaklega um þetta mál og ég hef ekki fengið svör við því enn þá en ég vænti þess að það verði orðið við þeirri beiðni minni.