sjúkraskrár.
Virðulegur forseti. Í umræðum um þetta mál hér í gær var fallist á beiðni mína um að taka málið aftur inn í nefnd á milli 2. og 3. umræðu til að gefa þinginu tækifæri til að taka afstöðu í mjög mikilvægu máli sem varðar aðgengi lækna flugáhafna að sjúkraskrám, sem þetta frumvarp gerir ekki ráð fyrir en ég tel mjög mikilvægt að þingið taki afstöðu til þess í frumvarpinu en bíði ekki eftir úrskurði Persónuverndar í því máli sem er til umfjöllunar. Ég vænti góðrar samstöðu um það í hv. velferðarnefnd að taka málið til rækilegrar umfjöllunar. Í því ljósi greiðir þingflokkur Miðflokksins ekki atkvæði með þessu að þessu sinni.