157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

eftirlit með skráðum trúfélögum.

135. mál
[16:29]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Trúfrelsi er stjórnarskrárvarið en takmarkast þó af góðu siðferði og allsherjarreglu. Á þeim grundvelli eiga menn rétt á að stofna félög um trú sína og lífsskoðanir. Ef félögin eru skráð fá þau ákveðin réttindi og skyldur samkvæmt lögum. Skráð trú- og lífsskoðunarfélög fá m.a. hlutdeild í tekjuskatti samkvæmt lögum um sóknargjöld o.fl. Í lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög er að finna ákvæði um eftirlit með þeim. Þar eru ákvæði um skil á skýrslum og um tilkynningar til sýslumanns um ársreikninga og um upplýsingaskyldu. Heimild er að finna í lögunum til að leggja stjórnvaldssektir á skráð félög sem vanrækja skyldu samkvæmt lögunum. Lögum samkvæmt má starfsemi og framferði trú- og lífsskoðunarfélaga ekki stríða gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjarreglu. En hvernig er raunverulegu eftirliti með því háttað, virðulegi forseti?

Löggjöf okkar og regluverk er gjarnan um margt líkt því sem gerist í nágrannaríkjum okkar. Í Noregi fá skráð trú- og lífsskoðunarfélög til að mynda framlög frá ríkinu, en hægt er að svipta félög þar skráningu og þar með framlögum ef þau brjóta gegn lögum, m.a. siðferðisákvæðum laga. Sem dæmi má nefna að fyrir nokkrum árum fór mikið fyrir umfjöllun um ákvörðun um að svipta norska Votta Jehóva ríkisframlaginu. Ákvörðunin byggðist á því að vottarnir beittu meðlimi sína andlegu ofbeldi með útskúfun og slíkt beindist m.a. gegn börnum og því fléttuðust barnaverndarsjónarmið inn í ákvörðunina.

Á Norðurlöndunum hefur líka farið fram umræða vegna raundæma þar sem íslömsk trúfélög hafa komið á fót einhvers konar sjaríadómstólum eða -ráðum, aðallega til að taka á fjölskyldumálum, m.a. hjúskapar- og forsjármálum. Mette Fredriksen forsætisráðherra Dana hefur m.a. tekið málið upp í danska þinginu og menn geta rétt ímyndað sér hvort sjaríalög samræmist norrænum lögum og reglum, allsherjarreglu og góðu siðferði, þeim réttindum sem við höfum barist fyrir og byggt upp, m.a. til handa konum, börnum og hinsegin fólki. Við erum vonandi hætt að hrista höfuðið yfir þeim sem vilja horfa til Norðurlandanna og læra af þróuninni þar og vítum til að varast. Ég man eftir því að hafa einhvern tímann verið strítt á því fyrir um 20 árum síðan þegar ég var að ræða áhyggjur mínar af erlendum glæpagengjum á Íslandi, að ég horfði of mikið á Sopranos. En núna er öldin önnur. Því beini ég þessari fyrirspurn að hæstv. ráðherra um hvernig raunverulegu eftirliti er háttað á Íslandi með því að framferði innan skráðra trúfélaga fari ekki gegn góðu siðferði og allsherjarreglu og að tilgangur þeirra stríði ekki gegn lögum, góðu siðferði og allsherjarreglu.