157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

eftirlit með skráðum trúfélögum.

135. mál
[16:37]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og hæstv. ráðherra fyrir spurningar og svör. Það er gott til þess að vita að við séum komin með skýrari reglur hvað þetta varðar. En ef ég skil fyrirspurn hv. þingmanns, þá snýr þetta ekki eingöngu að skýrslugjöf heldur að hlutum sem menn hafa komist að og kannski haft áhyggjur af og mér fannst hv. þingmaður ágætlega fara yfir það.

Ég tek undir með hv. þingmanni þegar hv. þingmaður segir að það er mjög skynsamlegt að læra af Norðurlöndunum. Ég held að það megi næstum því fullyrða að í flestum málum er það þannig að það sem gerist á Norðurlöndunum, það gerist nokkrum árum seinna eða áratug síðar á Íslandi. Hv. þingmaður vísaði í dæmi sem voru raunverulega á Norðurlöndunum og eru svo sannarlega til staðar, að maður hefði áhyggjur af hér líka. Það væri ágætt að heyra meira frá hæstv. ráðherra því að eins og ég skil hæstv. ráðherra þá snýr þetta að því að trúfélögum er gert skylt að svara spurningum og koma með skýrslu en (Forseti hringir.) hvað er gert þegar menn hafa grunsemdir að starfsemin sé sambærileg hér og annars staðar, og það hafi verið gripið inn í annars staðar. (Forseti hringir.) En eru einhverjar líkur á því að það verði gripið inn í hér?