157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

eftirlit með skráðum trúfélögum.

135. mál
[16:39]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir að vekja máls á þessu og hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt í þessum umræðum. Bara tvennt sem ég vildi koma með inn í þetta, fyrst hvað ég er eiginlega ánægður með þessi tvö orð, framferði og siðferði, þegar kemur að þessum lögum um trúfélög. Það ríkir auðvitað trúfrelsi hér og við eigum ekki að vera að blanda okkur í raun og veru inn í trú fólks sem kemur hingað sérstaklega að utan eða vill bara aðlagast annarri trú. Það breytir því ekki að við viljum kannski að það sé farið eftir því siðferði sem við viljum hafa í íslensku samfélagi, sérstaklega hvað varðar minnihlutahópa. Í umfjöllun um Zuism, sem var trúfélag sem fór vel út af sporinu ef það var trúfélag yfir höfuð, þá leysti sýslumaðurinn sem varð þessa áskynja það mjög vel, enda var það mál nokkuð farsællega leyst, þá upplifði ég það í viðtölum að hann hefði verið svolítið einn í þessu þrátt fyrir að hann hafi leyst þetta vel. Ég myndi vilja heyra kannski rétt í seinni ræðu ráðherra hvort hún gæti varpað ljósi á fjölda þeirra sem starfa við þetta. Ég veit að hún talaði um fjóra í nefnd, en hvað eru margir sem eru að rannsaka og fylgjast með?