eftirlit með skráðum trúfélögum.
Frú forseti. Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns sem er að spyrja hæstv. dómsmálaráðherra um þessi málefni. Þetta eftirlit með trúfélögum, skráðum trúfélögum sem þiggja fé í gegnum hið opinbera, þarf auðvitað að vera virkt og það þarf að bíta. Við höfum nýlega orðið vitni að því á vettvangi stjórnmálanna, við höfum uppgötvað það bara síðustu mánuði, að eftirlit með þeim fjármunum sem hafa runnið til stjórnmálaflokka og eftirlit með skilum stjórnmálasamtaka var í molum. Hver og einn eftirlitsaðili vissi ekki hvað hinn var að gera og þetta hefur komið berlega í ljós. Það er svipað með trúfélögin og ég vil benda hæstv. ráðherra á það að við megum ekki lenda í sömu gryfju með þau. Það þarf að vera bit í þessu, eftirlitið þarf að vera virkt og ef það þarf að laga lagaumhverfið og gera það skilvirkara, þá þarf að gera það.