157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

eftirlit með skráðum trúfélögum.

135. mál
[16:42]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið hér þátt. Hæstv. ráðherra rakti hér lagaheimildir, m.a. nýlegar breytingar varðandi eftirlit með þessum skráðum félögum og ég tek undir að það sé ef til vill ekki komin nein gríðarleg reynsla á þessar breytingar. En ég velti því samt fyrir mér, kannski á svipaðan máta og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson gerði áðan, hvernig þessi dæmi sem ég rakti hér frá Norðurlöndunum hefðu verið upplýst og þeim fylgt eftir með hliðsjón af regluverkinu hér. Þegar ég var að fara í gegnum þetta þótti mér það meira snúa að svona tæknilegum útfærsluatriðum, skýrslugjöf og þess háttar. Við höfum reyndar, eins og hv. þm. Karl Gauti Hjaltason fór yfir, ekkert alltaf verið spes í slíku eftirliti, en gott og vel.

Á Íslandi eru allir jafnir fyrir lögum. Þótt trúfrelsi sé stjórnarskrárvarið takmarkast það samt af góðu siðferði og allsherjarreglu eins og ég hef þegar farið yfir. Við sem hér búum njótum ýmissa réttinda en þeim fylgja líka skyldur eins og hæstv. ráðherra fór yfir í framsögu sinni. Við höfum sérstaklega varið til að mynda jafnrétti og velferð barna, m.a. í stjórnarskrá. Það hvílir rík skylda á stjórnvöldum að vernda réttindi borgaranna, gott siðferði og allsherjarreglu samfélagsins. Á því geta ekki verið neinar undantekningar, sama í hvaða búning þær eru klæddar. Ég hvet því hæstv. ráðherra til að líta til þróunar á Norðurlöndum í störfum sínum eins og hún hefur gert í svo mörgu tilliti og hafa opin augu fyrir því að ekkert fái að viðgangast hér á vegum trú- og lífsskoðunarfélaga sem stríðir gegn lögum, góðu siðferði eða allsherjarreglu.