157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

95. mál
[16:46]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Þýskt fyrirtæki hefur nú tekið við rekstri fríhafnarinnar eftir útboð ríkisfyrirtækisins Isavia. í tilkynningu frá þeim af því tilefni kom fram, með leyfi forseta, að breytingin myndi skila „ávinningi fyrir farþega, flugvöllinn og samfélagið í heild“. Fríhöfnin er ekki bara áfangastaður á leiðinni í fríið. Fríhöfnin er gríðarlega mikilvægur útsölustaður fyrir mörg lítil og meðalstór framleiðslufyrirtæki á Íslandi og rekstraraðilinn heldur þarna á einkarétti, ráðandi stöðu sem íslenska ríkið hefur afhent félaginu.

Félag atvinnurekenda hefur vakið athygli á því að í útboðslýsingu kom það skýrt fram að vörum þessara fyrirtækja yrði áfram gert hátt undir höfði hjá nýjum rekstraraðila, m.a. átti vöruframboð fríhafnarinnar aftur, með leyfi forseta, að ýta undir „tilfinningu fyrir staðnum“ og íslenskum vörum yrði áfram stillt fram til að styrkja „staðartilfinningu“. En hvernig, virðulegi forseti, fylgir Isavia því eftir við Heinemann að þeir uppfylli þessar útboðskröfur? Svo ég haldi áfram með útboðsgögnin: Hvernig, virðulegi forseti, fylgir Isavia því eftir að Heinemann vinni með innlendum framleiðendum og birgjum og sýni samfélagslega ábyrgð með því að styðja minni fyrirtæki, svo vísað sé áfram í gögnin?

Þessi fyrirspurn er ekki unnin í tómarúmi, virðulegi forseti. Félag atvinnurekenda hefur nefnilega lýst samskiptum Heinemann við minni íslenska birgja þar sem stífar kröfur hafa verið gerðar um lækkað verð, um breyttan greiðslufrest og um aukinn kostnað þessara birgja. Ég vildi gjarnan heyra viðhorf hæstv. ráðherra til þessa og til þess hvort hann telji að Heinemann styðji með þessu minni framleiðendur og vaxandi innlend vörumerki.

Eins og þetta sé ekki nóg, virðulegi forseti, vil ég sömuleiðis fá það útlistað frá hæstv. ráðherra hvernig stjórnvöld hafa fylgt eftir tilmælum Samkeppniseftirlitsins um að bæta umgjörð um starfsemi á Keflavíkurflugvelli, m.a. til að skapa samkeppni og auka hag almennings. Samkeppniseftirlitið beindi nefnilega þeim tilmælum til stjórnvalda fyrir tæpum fjórum árum að umgjörð um starfsemi flugvallarins yrði bætt. Hæstv. ráðherra hefur gjarnan verið talsmaður samkeppni og eftirlits með samkeppnisumhverfi og nú hvílir málið á hans herðum.