rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir spurningarnar og vil áður en ég hef svörin benda á að þó að Isavia sé vissulega ríkisfyrirtæki og í eigu ríkisins þá er það með sjálfstæða stjórn. Afskipti ríkisins felast í eigendastefnu sem gildir um Isavia og að eigandinn skipti sér ekki af einstökum rekstrarákvörðunum félagsins. Isavia ber hins vegar að fara að lögum og reglum eins og öðrum fyrirtækjum, þar með talið samkeppnislögum.
Varðandi spurningar hv. þingmanns þá voru tilboð bjóðenda metin út frá þeim þáttum sem komu fram, m.a. kröfum í útboðslýsingu, og Isavia leitaðist við að gera kröfur um að vörum með íslenskum uppruna yrði gert hátt undir höfði án þess þó að gerast brotlegt við reglur EES um frjálsa vöruflutninga. Meðal annars var gerð krafa um að útlit verslana og hönnun hefði sterka tengingu við Ísland og að útlit og hönnun verslana yrði í fullu samræmi við þau viðmið sem Isavia setti fram í útboðsgögnum, þ.e. samræmi við vörumerkjahandbók Keflavíkurflugvallar og viðskiptasýn. Bjóðendur, þar með talið Heinemann, þurftu að útlista í tilboði sínu hvernig þeir hygðust uppfylla ítarlega útfærðar kröfur í þessum efnum. Félagið fylgir þessum kröfum eftir í rekstrarleyfissamningi og þar er ákvæði um að leyfishafi skuli ávallt á gildistíma fara að stöðlum félagsins og fylgja þeim stöðlum sem settir eru fram í rekstrarhandbók Keflavíkurflugvallar, viðskiptasýn félagsins, vörumerkjahandbók Keflavíkurflugvallar og siðareglum fyrir birgja félagsins og ákvæðum samnings um þjónustustig. Í ákvæðum rekstrarleyfissamningsins og samningsins um þjónustustig eru síðan nánari ákvæði sem taka á eftirfylgd með einstökum þáttum. Rekstrarleyfissamningurinn gerir til að mynda ráð fyrir að félagið geti sannreynt að öll þau loforð sem sett hafi verið fram séu uppfyllt af Heinemann og gerir ráð fyrir margvíslegri upplýsingagjöf af hálfu Heinemann í þeim tilgangi. Þannig getur félagið fylgst náið með framgangi þessara mála.
Heinemann skilaði skuldbindandi lista með vörumerkjum sem verða til sölu í brottfarar- og komuverslun. Fyrirtækið þurfti að sýna fram á hvernig það styður við stefnu Isavia um samfélagslega ábyrgð, bæði varðandi eigin rekstur og helstu samstarfsaðila. Isavia getur samkvæmt þjónustusamningi beitt sektum ef Heinemann uppfyllir ekki loforð um vöruframboð. Samningurinn heimilar einnig afslátt af veltutengdri leigu ef Heinemann kynnir óþekkt innlent vörumerki og hjálpar því að vaxa með góðri staðsetningu í Ísland Duty Free.
Ráðherra hefur ekki ástæðu til að ætla að Heinemann muni eiga erfitt með að standa við þær skuldbindingar sem fyrirtækið tók á sig í útboðsferlinu. Sem fyrr segir eru efnahagslegir hvatar í samningnum til að stuðla að umræddu atriði.
Almennt séð er mikilvægt að traust og sanngirni ríki í öllum viðskiptasamböndum, ekki síst þegar um er að ræða mikilvægan vettvang eins og fríhöfnina sem nú heitir Ísland Duty Free á Keflavíkurflugvelli. Almennt gilda þó reglur markaðarins um viðskipti þar eins og annars staðar.
Bent er á varðandi Samkeppniseftirlitið að frá útgáfu álits eftirlitsins hefur helstu lögum sem snerta starfsemi Isavia verið breytt. Þá er ástæða til að árétta að innviðaráðuneyti fer með málefni flugvalla og flugsamgangna. Í tengslum við umrædd tilmæli Samkeppniseftirlitsins er jafnframt rétt að hafa í huga eftirfarandi atriði: Fjölbreytt löggjöf gildir um starfsemi félagsins, ekki eingöngu samkeppnislög. Lög um uppbyggingu og rekstur flugvalla og þjónustu við flugumferð eru á málefnasviði innviðaráðherra. Um útboð og starfsleyfissamninga fjallar bæði almenn eigendastefna ríkisins og sérstakur viðauki um Isavia, auk þess sem ákvæði laga um opinber innkaup og reglugerðir gilda eftir atvikum.
Varðandi gjaldtöku Isavia gilda lög um loftferðir. Þá kveður eigendastefna ríkisins á um gegnsæi, jafnræði og samkeppnissjónarmið í þjónustu við flugrekendur.
Varðandi þátttöku Isavia í samkeppnisstarfsemi og flugafgreiðslu og úthlutun afgreiðslutíma hefur Isavia bent á að flugafgreiðsla sé ekki á þeirra vegum nema sameiginleg aðstaða og að félagið úthluti ekki afgreiðslutíma heldur sjálfstæður úthlutunarstjóri.
Varðandi hagkvæmni og eigendastefnu Isavia kemur fram í eigendastefnu ríkisins að félaginu beri að hámarka arðsemi og taka tillit til samkeppnissjónarmiða.