rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur og hæstv. ráðherra fyrir að hefja þessa umræðu og taka þátt í henni. Ég varð fyrir smá áfalli þegar ég kom heim um daginn og ég sá hvað vöruúrvalinu og ásýndinni í fríhöfninni hefur hrakað, verð ég að segja. Það er ekkert langt síðan að maður var að koma heim og þetta var orðið svakalega glæsilegt mannvirki og þetta var virkilega flottur fyrsti salur til að koma inn frá Exit to Iceland-skiltinu. Aðrir hv. þingmenn hafa bent á þessar tölulegu staðreyndir frá Félagi atvinnurekenda um verðið og hvernig það hefur áhrif á samkeppnishæfni. Það verður líka að halda áfram að hlusta á þessa íslensku birgja af því að þetta er enginn smá salur og enginn smá vörugluggi fyrir þá að selja og kynna sínar vörur þegar fólk er að ganga inn í landið. Það verður að segjast alveg eins og er að ef þið labbið í gegnum fríhöfnina núna, þá er glugginn orðinn svolítið skítugur.