157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

95. mál
[16:59]
Horfa

Pawel Bartoszek (V):

Virðulegur forseti. Við erum hér á hinu háa Alþingi að ræða með hvaða hætti einkaaðilar raði vörum upp í hillur sínar [Hlátur í þingsal.] og með hvaða hætti þeir verðleggja sína vöru. Af umræðunni mætti kannski ráða að vandinn væri sá að þessar reglur væru ekki nægilega skýrar og ekki nægilegt eftirlit með þeim. Mín skoðun er sú að vandinn felst í því að við tölum um fríhöfnina með ákveðnum greini, þ.e. að við séum með eina Fríhöfn sem öllu er beint í áttina að. Ég held að lausnin sé miklu frekar einhvers konar hugmynd um virka og frjálsa samkeppni, frekar en einhverjar vangaveltur um með hvaða hætti einkaaðilar eigi að raða vörum í sínar hillur.