rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Virðulegur forseti. Mér leikur forvitni á að vita aðeins um afstöðu hæstv. fjármálaráðherra um atriði sem ég hef svo sem spurt hann um áður, en honum hefur nú gefist ráðrúm til þess að skoða síðan þá, þ.e. áfengissala í fríhöfninni núna sem rekin er af einkaaðila, þessu þýska Heinemann fyrirtæki eins og hefur verið rakið hér ágætlega í umræðunni. Samkvæmt íslenskum lögum um áfengissölu er kveðið á um einokun ríkisins á áfengissölu. Á sínum tíma, árið 2016, var Isavia, jafnvel Isavia, í óvissu um það hvort þeim væri heimilt að selja áfengi og tollalögum var breytt til að taka af allan vafa um það. En í tollalögum er kveðið á um að áfengissala í fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli fari fram af hálfu opinbers aðila. Hvað finnst hæstv. ráðherra um það ójafnræði sem núna hefur skapast á Íslandi, að það er bara erlendur einkaaðili sem getur selt áfengi og það er þá þarna í Keflavík, en íslenskir aðilar geta ekki selt áfengi hér á Íslandi?