157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

95. mál
[17:02]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið hér þátt í umræðunni. Hæstv. ráðherra vísaði auðvitað til takmarkaðra heimilda sem hann hefur, en hann tilnefnir í stjórn og hann gegnir mikilvægu eigendahlutverki og m.a. eftirfylgni og eftirlitshlutverki. En fyrirkomulagið er auðvitað það sem við erum ekki síst að ræða hérna, ekki bara vöruúrval eða verð í fríhöfninni. Við erum að ræða, eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom inn á áðan, fílinn í herberginu sem er fyrirkomulag þessa batterís og mér finnst það góðra gjalda vert. Við getum ekkert alltaf verið að ræða hérna hjólaleiðir. Hæstv. ráðherra kom inn á það að samkvæmt rekstrarleyfissamningi þá gæti Isavia sannreynt að skilyrðin væru uppfyllt, að staðið væri við fyrirheitin og þá vonast ég bara til að Isavia geri það í þessum málum.

Hv. þm. Tómas Þór Þórðarson kom inn á það áðan, sem mér var hugsað til þegar ég var að hlusta á hæstv. ráðherra varðandi vöruúrvalið, hvað það er orðið ansi lélegt, og það er bara gott að vita til þess að maður geti komið ábendingum beint til Isavia varðandi þetta fyrst þeir geta hlutast til um það. Gott og vel. Ég tek undir með hæstv. ráðherra varðandi mikilvægi sanngirni og trausts. Mér finnst bara ekki hljóma eins og það sé til staðar, a.m.k. af þeim málflutningi sem við höfum orðið vitni að. Við erum ekki að gera kröfu um neina sérmeðferð, við erum bara að gera kröfu um að það sé staðið við skilmála útboðs og að markaðsráðandi staða sé ekki hreinlega misnotuð.

Hæstv. ráðherra svaraði síðan litlu til varðandi umgjörðina. Hann lýsti bara umgjörðinni en fór ekki út í þessar breytingar, sem ég skildi eins og Samkeppniseftirlitið hefði kallað eftir. En mig langaði bara til að ítreka það að lokum hversu gríðarlega mikilvægur útsölustaður fríhöfnin er fyrir þessi litlu og meðalstóru framleiðslufyrirtæki á Íslandi. Það er ekki eins og þau geti bara snúið sér eitthvað annað. Í mjög mörgum tilvikum er þetta (Forseti hringir.) ekki bara stærsti, heldur langstærsti útsölustaður þeirra og bara svo ég hugsi upphátt að lokum: Stundum finnst mér eins og að það sé ekki eitt heldur allt með Isavia.