157. löggjafarþing — 24. fundur,  22. okt. 2025.

rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.

95. mál
[17:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir þeirra ágætu ábendingar og athugasemdir og mun leggja mig fram um að svara því sem ég get. Nú er rétt að halda til haga varðandi athugasemdir hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þá var það fyrri stjórn Isavia sem stóð að útboðinu og gerði téðan samning við fyrirtækið Heinemann. Raunar var þáverandi stjórnarformaður fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins og þess vegna erfitt að sjá hvernig hægt er að tengja þetta við breytingar á skipun stjórna. Í stuttu máli er þó rétt að ítreka það sem fram kom í máli mínu að það er í gegnum eigendastefnu ríkisins sem ríkið hefur áhrif á ákvarðanatöku fyrirtækja.

Hv. þm. Vilhjálmur Árnason kom með nokkuð sérstæða ábendingu sem ég veit ekki alveg hvernig á að takast á við þar sem hann virtist telja að mögulegt væri að fá aðila inn í rekstur fyrirtækis þó að ávöxtun eigin fjár stæði ekki undir rekstrinum. Ég mun spyrja hv. þingmann hér í kjölfarið hvernig hann kemst að þessari niðurstöðu. Það er auðvitað lykiláhersla ef við ætlum að fá slíka aðila að rekstrinum að þá sé afkoma fyrirtækisins þannig að þeir séu tilbúnir að leggja í það fé.

Ég get glatt hv. þm. Tómas Þór Þórðarson með því að segja að aðstaðan í móttökusal er nú í framkvæmdafasa og af þeim sökum er aðstaðan sá skítugi gluggi sem hv. þingmaður nefndi í sinni ræðu.

Að lokum varðandi ábendingar málshefjanda hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur um fyrirkomulag eignarhalds þá verður auðvitað að halda því til haga að þó að við hv. þingmaður séum sammála um mikilvægi þess að ríkið hafi eins lítil afskipti og hægt er þá eru undantekningar sem eru held ég ekkert umdeildar. Þær snúa að rekstri þar sem eru markaðsbrestir, t.d. þegar um er að ræða náttúruleg einokunarfyrirtæki og svo sannarlega er Isavia í þeirri aðstöðu.