157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

mannabreytingar í nefndum.

[10:30]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Miðflokksins um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að Karl Gauti Hjaltason taki sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Þorgríms Sigmundssonar. Þá taki Þorgrímur Sigmundsson og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sæti sem aðalmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í stað Ingibjargar Davíðsdóttur og Karls Gauta Hjaltasonar en Ingibjörg Davíðsdóttir verði varamaður í sömu nefnd í stað Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur. Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.