staða starfseminnar á Grundartanga og samkeppnishæfni Íslands í iðnaði.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir mikilvæga fyrirspurn. Það er alveg ljóst að þessir atburðir á Grundartanga eru högg. Þeir eru auðvitað högg fyrir þann fjölda starfsfólks sem er núna í óvissu, þó að við stöndum auðvitað hér öll og vonum það besta hvað varðar þá atvinnu. Þetta er högg fyrir svæðið, það velkist enginn okkar í vafa um mikilvægi starfseminnar á Grundartanga fyrir þetta atvinnusvæði og Akranes sem bæ. Þetta er högg fyrir okkur í heild. Eins og hv. þingmaður fór vel yfir þá er þessi starfsemi mjög stórt hlutfall, eins og títt er um þessi stærstu fyrirtæki landsins í okkar fámenna landi, ekki bara af útflutningstekjum heldur líka afleiddri starfsemi sem þessi fyrirtæki gefa af sér. Staðan er sú að ég og aðrir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem og, ég geri ráð fyrir, aðrir þingmenn kjördæmisins, erum í þéttu samtali við stjórnendur og við fylgjumst vel með. Við vitum að það er ekki útséð um hvernig þetta endar. Hins vegar er ljóst að þessi samdráttur í starfseminni mun vara í einhvern tíma.
Það er algjörlega óljóst hvernig þarf að bregðast við. Hvað er hægt að gera? Við verðum bara að gefa svigrúm til að fara vel ofan í saumana á þessu máli. Ég ætla engu að síður að vera bjartsýn fyrir hönd bæði íslensks efnahagslífs og verðmætasköpunar. Við erum þrátt fyrir allt með mörg egg í okkar ágætu körfu og það er margt gott í gangi. Áhrif sterku krónunnar okkar á útflutningsgreinarnar eru erfið, við vitum það og það á við um iðnaðinn líka en það er engu að síður margt gott í gangi. Ég held að stóra svarið akkúrat núna sé að fylgjast vel með, vera í þéttu sambandi, halda (Forseti hringir.) utan um þessa starfsemi eins og hægt er og það fólk sem þarna var undir og vera tilbúin með aðgerðir ef þess gerist þörf. En fyrst og fremst vonast ég auðvitað til þess að það (Forseti hringir.) neikvæða raungerist ekki og þetta verði skemmra stopp en mestu líkur eru á akkúrat núna.