157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

staða starfseminnar á Grundartanga og samkeppnishæfni Íslands í iðnaði.

[10:38]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og tek undir með henni að auðvitað væri best ef niðurstaðan verður sú að þetta verði ekki eins alvarlegt og lítur út fyrir í dag. Á fundi atvinnuveganefndar í morgun kom það skýrt fram hjá fulltrúum Samtaka iðnaðarins að samkeppnishæfni í íslenskum iðnaði hefði farið versnandi og að sú staða sé í raun uppi í dag að ef það stæði til að setja upp álver einhvers staðar á jarðkringlunni þá væri það sannarlega ekki á Íslandi. Samkeppnishæfni Íslands hvað það varðar væri ekki nægilega góð. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún sjái fyrir sér að við getum bætt samkeppnishæfni íslensks iðnaðar þegar það blasir við að við höfum innleitt hér fjölda reglugerða (Forseti hringir.) frá Evrópusambandinu sem hafa ekki gert annað heldur en að gera (Forseti hringir.) samkeppnishæfni Íslands hvað þetta varðar mun lakari en efni standa til.