endurmat á forsendum hagstjórnar stjórnvalda.
Frú forseti. Ég ætla að vera á sömu slóðum og þeir sem hafa komið hér fyrr, varðandi þá alvarlegu stöðu sem er að teiknast upp á Grundartanga vegna bilunar í álverinu. Þetta er auðvitað gríðarlegt áfall fyrir samfélagið okkar, fyrir fyrirtæki, starfsfólk þess og má í rauninni segja samfélagið allt. Álverið starfar nú einungis á þriðjungs afköstum og það hefur þegar haft veruleg áhrif á útflutningstekjur þjóðarbúsins. Áætlað er að tjónið nemi milljörðum króna, jafnvel tugum milljarða króna. Tæp 10% af öllu áli sem framleitt er í Evrópu er framleitt á Grundartanga. Álframleiðsla hefur verið um árabil einn helsti útflutningsliður landsins og í rauninni íslensks efnahagslífs og dregur bilun sem þessi því úr gjaldeyristekjum og getur aukið viðskiptahalla landsins. Þar með skapast þrýstingur á gengi krónunnar. Samhliða gæti þetta haft neikvæð áhrif á skatttekjur ríkisins og sveitarfélaga.
Það eru fleiri áföll sem hafa dunið yfir, eins og hefur komið fram hér, og við sjáum í rauninni rauð ljós blikka alls staðar í efnahagsmálum. Gleymum ekki áföllum eins og falli flugfélagsins Play og lokunar PCC á Bakka sem hefur veruleg áhrif á samfélagið þar og þó svo að verið sé að reyna að finna einhverjar aðrar lausnir þá skiptir fyrirtækið samfélagið mjög miklu máli. Þá er ótalið viðkvæm staða á fasteignamarkaðnum og alls konar óvissa um kostnað fjármögnunar fyrir einstaklinga og fyrirtæki varðandi lán.
Í ljósi alls þessa vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra þar sem hún ber ábyrgð á hagstjórn landsins almennt: Telur hæstv. forsætisráðherra tilefni til þess, í ljósi alls þessa, að það þurfi að endurmeta forsendur hagstjórnarinnar vegna yfirstandandi óvissu með tilliti til útflutningstekna, viðskiptahalla, gengisþróunar og t.d. skatttekna ríkisins?