157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurmat á forsendum hagstjórnar stjórnvalda.

[10:53]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið og tek alveg undir að hugur okkar er hjá starfsfólki fyrirtækisins, vissulega. En hins vegar er óvissan augljóslega að aukast dag frá degi. Við sjáum t.d. að við eigum von á enn einu eldgosinu og á sama tíma er ríkisstjórnin ekki að ná tökum á verðbólgunni. Vextir á lánum heimila og fyrirtækja eru enn allt of háir og munu í rauninni ekki lækka að neinu marki fyrr en á næsta ári, hugsanlega. Ríkisstjórnin er að auka útgjaldaþrýsting fjárlaga á ýmsan hátt og boðar ýmsar skattahækkanir, aðallega á landsbyggðina, eða skattbreytingar nánast vikulega, eins og t.d. breytingar á vörugjöldum. Við í Framsókn gagnrýndum í vor forsendur fjármálaáætlunar, m.a. með tilliti til óvissu í efnahagsmálum og að almennur varasjóður þyrfti að vera meiri, það þyrfti að gera ráð fyrir áföllum til að geta brugðist í raun við áföllum sem við erum að sjá núna blasa við, því miður. Og á sama tíma eru tekjuforsendur ríkisins að bresta að miklu leyti.

Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: (Forseti hringir.) Telur hún ekki tilefni til þess að endurmeta lykilforsendur fjármálaáætlunar og fjárlaga í ljósi þessa? Er fyrirhugað að breyta forsendum á gjaldahlið fjárlaga í ljósi þess að tekjuforsendur ríkisins eru hugsanlega að bresta á á næsta ári og jafnvel á árinu 2025?