157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurmat á forsendum hagstjórnar stjórnvalda.

[10:55]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við innleiddum í vor stöðugleikareglu í ríkisfjármálum. Kostir slíkrar stöðugleikareglu eru að hún veitir slaka þegar hagkerfið gefur eftir en nýtur ekki tekjuauka þegar hagkerfið gefur auka inn í kerfið. Það er nákvæmlega undir svona kringumstæðum sem stöðugleikaregla virkar, þ.e. við getum horft að einhverju leyti í gegnum það ef það verður samdráttur í tekjum út af ófyrirséðum áföllum, út af því að hagkerfið er að gefa eftir af því að þensla minnkar þá, verðbólguþrýstingur minnkar þá og það er þá svigrúm ef tekjur falla. Þá falla ekki endilega útgjöld samhliða enda getur það líka verið flókið í svona aðstæðum, ef ríkið ætlar líka að fara í meiri niðurskurð, ef það er kominn slaki í hagkerfið. Kosturinn við stöðugleikaregluna er klárlega sá að í svona aðstæðum gefur hún svigrúm til þess að bregðast við aðstæðunum.

Fjármálaáætlun mun auðvitað fara í endurskoðunarferli eins og á hverju einasta ári núna upp úr áramótum og þá þarf að taka tillit til nýrrar stöðu. En eins og ég segi, það mun koma endurmat á forsendum fjárlaga núna í aðdraganda 2. umræðu. Vonandi verðum við komin með meira og betra skyggni í aðdraganda þess en akkúrat núna erum við að meta stöðuna. Ég ítreka að við tökum þetta alvarlega en við höfum tæki og tól til að bregðast við og sýna stuðning og það skiptir máli.