157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurskoðun áforma ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[10:57]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Hæstv. forsætisráðherra segir að efnahagsmálin séu númer eitt, tvö og þrjú hjá þessari ríkisstjórn. Það er búið að kveða þann boðskap frá því að þessi ríkisstjórn kom saman og hún hefur líka nota frasana að ef þetta gengur ekki nógu vel hjá okkur, ef þetta dugar ekki þá munum við vinna enn hraðar og gera enn meira. Þeir frasar eru enn í gangi. Nú á að greina stöðuna áður en viðbrögð verða ákveðin, eins og eðlilegt er, starfsfólk og stærðargráðan fyrir þjóðarbúið er augljóslega hér undir.

Þetta áfall kemur inn í alvarlega stöðu. Við erum hér með verðbólgu á óásættanlegum stað og vexti á óásættanlegum stað þrátt fyrir sleggjuna stóru. Við erum með atvinnuleysi í 3,5% og það fer vaxandi. Við erum núna með 35 MW ónýtt í kerfinu af raforku, tugmilljarða verðmæti í raforku sem er ekki nýtt. Hér er undir fyrirtæki sem er með 70 milljarða í útflutningstekjur og áhrifin á undirverktaka og birgja gætu numið tugmilljörðum. Þetta gæti verið 100 milljarða áfall. Auðvitað vonum við það besta en við verðum að óttast og gera ráð fyrir því að sviðsmyndin verði ekki góð. Þetta hlýtur að kalla á aðgerðir. Það hlýtur að þurfa að hlúa að atvinnulífinu með öðrum ráðum en ríkisstjórnin hefur verið að gera, þ.e. íþyngjandi skattaálögum, vörugjaldi á ökutæki, breytingu á búvörulögum sem dregur úr samkeppnishæfni, skattlagningu á ferðaþjónustuna og sjávarútveg. Við þurfum að fara í það að greiða fyrir fjárfestingu. Við hljótum að þurfa að búa til hvata í samvinnu við atvinnulífið og til að það geti brugðist hratt við, eins og það hefur oft sýnt áður, þá þurfum við að búa til hvata í kerfinu til að lyfta undir aukna fjárfestingu, aukna verðmætasköpun og aukna atvinnuþátttöku. Það hlýtur að vera eina svarið.

Þess vegna ætla ég að spyrja hæstv. forsætisráðherra: Kemur ekki til greina að endurskoða áform ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) um auknar og íþyngjandi álögur á atvinnulífið í formi skatta, vörugjalda, veiðigjalda o.s.frv., þannig að við getum samið við atvinnulífið um að vinna okkur út úr þessu og koma okkur af stað aftur? (Forseti hringir.) Þannig höfum við getað brugðist við, samtaka í þessu samfélagi til að bregðast við svona áföllum.