157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurskoðun áforma ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[11:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það var ekki mikill baráttutónn í þessari ræðu hæstv. forsætisráðherra, vægast sagt. Aðgerðir í húsnæðismálum, allsherjartiltekt, þetta er eitthvað sem á að bjarga því áfalli sem við erum að verða fyrir. Ríkisstjórnin er búin að greiða fyrir aukinni orkuöflun. Ég geri ráð fyrir því að ríkisstjórnin styðji þá frumvarp mitt um fimm vatnsaflsorkukosti sem verði settir í algjöran forgang fram hjá öllum lögum og reglum til að koma þeim strax af stað fyrir íslenskt efnahagslíf og íslenskt samfélag.

Við kláruðum líka rammaáætlun, virðulegur forseti, þó að það sé reynt að halda því fram að það hafi ekki tekist. Erum að fara sömu leið og fyrri ríkisstjórn. Ja, þau gagnrýndu það mikið á síðasta kjörtímabili hvernig síðasta ríkisstjórn starfaði. Það má vera að hluti af þeim málum sem þau komu með inn séu mál frá fyrri ríkisstjórn en það er full ástæða til að bregðast við núna við þessar aðstæður og þessar skattahækkanir sem eru þegar komnar, búið að taka ákvörðun um og eru í pípunum, að það verði gripið til ráðstafana þar (Forseti hringir.) þannig að við getum lyft þessari lamandi hendi af atvinnulífinu. Við erum að horfa hér á fjöldauppsagnir í sjávarútvegi. Við erum að horfa á mikinn samdrátt í ákveðnum greinum ferðaþjónustunnar. Ferðaþjónustan býr við mikla óvissu á ferðaþjónustudeginum í dag um framtíð sína varðandi skattlagningu. (Forseti hringir.) Það eru boðuð fleiri gjöld og skattar á þar og svona má áfram telja. Bændasamfélagið er í uppnámi út af frekari skattahækkunum.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra enn og aftur: Er ekki tilefni núna við þetta áfall (Forseti hringir.) sem við vonum að verði til skemmri tíma en óttumst að verði til lengri tíma með mjög alvarlegum afleiðingum, að það verði brugðist við því með raunhæfum aðgerðum, ekki einhverjum frösum um það (Forseti hringir.) hvernig við ætlum að auka á aukna verðmætasköpun annarra greina í atvinnulífinu á meðan við komumst í gegnum þennan skafl?

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir hv. þingmönnum á að í seinni umferð óundirbúinna fyrirspurna er ræðutíminn ein mínúta.)