157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurskoðun áforma ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum.

[11:04]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Það besta sem við getum gert fyrir íslenskt atvinnulíf er að ná jafnvægi í ríkisfjármálum. Ætlar minni hlutinn ekki að taka þátt í því verkefni að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og bæta afkomu ríkissjóðs? Ætlar minni hlutinn bara að koma með tillögur sem rýra afkomu ríkissjóðs? Hverjar eru tillögurnar? Annars vegar er kvartað yfir niðurskurði, hins vegar er kvartað yfir tekjuauka. Við þurfum líka að hafa raunveruleikatengingu hér inni og það besta sem ríkisstjórnin getur gert fyrir íslenskt atvinnulíf er að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og það er það sem við ætlum að gera. Það sem við ættum líka að gera, m.a. með því að vera með stöðugar tekjur af vegakerfinu, er að styrkja samgöngur í landinu, eitthvað sem gekk mjög illa hjá síðustu ríkisstjórn. Það er til þess að bæta stöðu íslensks atvinnulífs að samgöngur í landinu séu í lagi, að hér sé komið á fót innviðafélagi, sem lögð verður lokahönd á næstu vikum, til að byrja aftur að bora göng á Íslandi. Það hófust ekki framkvæmdir við ein göng á síðustu kjörtímabilum hjá þeirri ríkisstjórn.

Það er plan, það er verið að vinna eftir plani. Það breytir því ekki að auðvitað er erfitt (Forseti hringir.) þegar áföll dynja yfir. Hugur okkar er hjá starfsfólki Norðuráls. Það er erfitt að mæta þessari stöðu en við munum vera undirbúin þegar við áttum okkur á því hvert umfang verkefnisins er og við erum að fylgjast með.