endurskoðun innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa.
Virðulegi forseti. Hæstv. forsætisráðherra sagði hér áðan að forgangsverkefnið væri atvinnulífið og efnahagsmálin. Á örskömmum tíma er komin upp grafalvarleg staða í þjóðarbúinu. Rekstur PCC á Húsavík er stopp. Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga hefur dregið úr framleiðslu sinni um þriðjung vegna krefjandi markaðsaðstæðna og yfirvofandi tolla frá Evrópusambandinu. Nú er það Norðurál, næststærsta stóriðja landsins, sem verður fyrir margra mánaða framleiðslustöðvun á nærri tveimur þriðju hlutum starfsemi sinnar. Tuga milljarða virði af útflutningstekjum mun tapast og fjöldi starfa er í hættu. Þessi staða kallar auðvitað á viðbrögð ríkisstjórnarinnar, sérstaklega þeirrar sem kallar sig verkstjórn. Nú hlýtur allra leiða að verða leitað til að draga úr því höggi sem nú ríður yfir þjóðarbúið.
Þar sem í dag er dagur ferðaþjónustunnar beini ég fyrirspurn minni að gjaldtöku sem sætt hefur mikilli gagnrýni, þ.e. því innviðagjaldi sem nýlega var tekið upp á alla farþega skemmtiferðaskipa með nánast engum fyrirvara. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra lét hafa það eftir sér í Morgunblaðinu í gær að þessi gjaldtaka sé misráðin. Þetta gjald er að kollvarpa öllum forsendum í komum skemmtiferðaskipa þar sem hafnir og sveitarfélög landsins sjá fram á hrun í bókuðum skipakomum á næsta ári. Ísafjörður, Húsavík, Borgarfjörður eystri, Seyðisfjörður og fleiri staðir horfa allir fram á gríðarlegan og jafnvel algjöran samdrátt í tekjum af komum skemmtiferðaskipa. Þessi staða hríslast svo auðvitað niður í nær alla þjónustustarfsemi á þessum stöðum. Komur skemmtiferðaskipa mynda í dag sjálfa kjölfestuna í ferðaþjónustu þessara staða. Í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í þjóðarbúinu, telur hæstv. atvinnuvegaráðherra það ekki tímabært að leggja til að þetta gjald verði hreinlega lagt af?