endurskoðun innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eiríki S. Svavarssyni fyrir fyrirspurnina. Gott að sjá þig hér í þingsal. Þetta er hin besta fyrirspurn og ég fagna henni. Þetta er alveg rétt, þó að aðdragandinn hafi verið, eins og hv. þingmaður fór yfir, svolítið um víðan völl og áföll af ýmsum toga hafa dunið á íslensku efnahagslífi undanfarið, en það er bara eins og það er þegar um þjóðarskútuna er að ræða. Hæstv. forsætisráðherra hefur farið vel yfir það að ríkisstjórnin er með augun á boltanum og er í góðu samtali og heldur áfram á sinni vegferð. Ég ætla bara að nota tækifærið hér og taka undir það að það besta sem hægt er að gera til að auka samkeppni íslensks atvinnulífs og tryggja hag okkar sem best er að ná tökum á ríkisfjármálunum og á þeirri vegferð erum við.
Varðandi innviðagjaldið þá er ég sammála hv. þingmanni að það er ástæða til að skoða þessa ákvörðun sem tekin var mjög bratt í tíð síðustu ríkisstjórnar og sýnir kannski að það eru ekki bestu vinnubrögðin að vinna svona mál með engum fyrirvara, sérstaklega þegar um er að ræða atvinnugrein sem byggir viðskipti sín á akkúrat fyrirvara til eins til tveggja ára, jafnvel lengur, skilst mér þegar um er að ræða skemmtiferðaskip. Við fórum í það að lækka þetta niður í 20 ár, í frumvarpi fjármálaráðherra sem nú liggur fyrir þinginu. Ég myndi fagna því ef þingið skoða það gaumgæfilega í meðförum efnahags- og viðskiptanefndar eða atvinnuveganefndar hvort hægt væri að færa þetta gjald frekar niður, a.m.k. tímabundið, vegna þess að þetta skiptir máli og það hefur sýnt sig að þetta hefur óþarflega neikvæð áhrif, (Forseti hringir.) sérstaklega á brothættari byggðir sem hafa reitt sig mikið á þessi viðskipti og afleidd viðskipti. Ég veit að málið er í meðförum þingsins núna og ég sé hér formann efnahags- og viðskiptanefndar og man þá að málið er þar.