157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

endurskoðun innviðagjalds á farþega skemmtiferðaskipa.

[11:10]
Horfa

Eiríkur S. Svavarsson (M):

Virðulegi forseti. Í ljósi þessa svars vil ég í fyrsta lagi benda á að lækkun gjaldsins í ár er einungis tímabundin fyrir árið 2026, um 500 kr. Áætlaðar tekjur ríkissjóðs af þessu gjaldi samkvæmt fjárlagafrumvarpi næsta árs eru 1,2 milljarðar. Það er nú ekki meira. Niðurfelling þessa gjalds hefur afar lítil áhrif á tekjur ríkissjóðs en getur hins vegar haft risastór jákvæð áhrif í ferðaþjónustu og margfeldisáhrif á efnahag og atvinnu fjölda byggðarlaga. Það er afskaplega lítil aðgerð fyrir ríkið en risastór fyrir ferðaþjónustuna á tíma sem öllu skiptir að gera allt það sem eykur útflutningsverðmæti hjá stærstu útflutningsstoð þjóðarbúsins.

Ég vil bara benda á það að lokum að hæstv. ráðherra vísar hér til Alþingis og meðferðar málsins á þingi. Ég spyr aftur: Ætlar ráðherrann að beita sér fyrir því að leggja þetta gjald af?