157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis.

201. mál
[11:14]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Hér er ég að kalla eftir því að fá skýrslu frá innviðaráðherra varðandi jöfnun kostnaðar vegna flugvélaeldsneytis. Ég hef kallað eftir þessari skýrslu áður ásamt öðrum flutningsmönnum. Þetta snýst um það að finna leiðir til að niðurgreiða flutning á flugvélaeldsneyti á Akureyri og Egilsstöðum. Í rauninni snýst þetta um það að jafna leikinn við þessa flugvelli gagnvart Keflavík og finna hugsanlegar aðgerðir til þess að mæta þessum kostnaði sem felst aðallega í flutningnum. Það er hægt að fara margar leiðir, m.a. hugsanlega líka að tankar séu staðsettir á þessum svæðum. Það gæti bæði verið hagræði í því en einnig visst þjóðaröryggi, að við séum með flugvélaeldsneyti á fleiri en einum stað. Ég veit að vinna var hafin við þessa skýrslu í innviðaráðuneytinu og langt komin þannig að ég bind vonir við að hún berist fljótlega til okkar hér í þinginu ef þessi beiðni verður samþykkt hér í dag.