verðbréfun.
Virðulegi forseti. Uppruna þessa verðbréfamáls má rekja til hruns bankakerfisins í kringum 2008–2009 þegar mörg fjármálafyrirtæki fóru að böndla saman flóknum verðbréfum í stærri pakka í því skyni að endurselja. Það olli kerfislægri áhættu og þessi umgjörð, þessi lög eru ákveðin tilraun Evrópuréttar til að bregðast við þeirri kerfisáhættu sem það olli.
Þingflokkur Viðreisnar mun styðja þetta mál. Það bárust tvær umsagnir í umsóknarferlinu, ein í ferlinu á síðasta þingi og ein á núverandi þingi, annars vegar frá Seðlabankanum sem tók mjög vel í málið en vildi fá stjórnsýslusektir, sem nefndin féllst ekki á, og hins vegar voru Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu sem voru eindregið með því að málið myndi ná fram að ganga á þessu kjörtímabili. Þess vegna varð ég örlítið hissa í 2. umræðu að horfa á töfluna sem var meira og minna gul þegar kom að stjórnarandstöðunni. Ég ætla nú ekki að reyna að skilja þá geimferð sem Miðflokkurinn er í þegar kemur að EES-málum en hins vegar var þetta mál tekið inn í EES-samninginn á þeim tíma þegar Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur voru við völd, sumarið 2024, og þess vegna tel ég að þeir flokkar hafi allar forsendur til að taka ákvörðun um hvort þetta mál sé gott mál eða ekki. Ég var örlítið hissa að sjá þessa gulu töflu og hvet þá flokka sem hér eru alla til að styðja þetta mál.