verðbréfun.
Virðulegur forseti. Mér er ljúft og skylt að reifa í stuttu máli afstöðu þingflokks Miðflokksins í atkvæðagreiðslu við 2. umræðu í þessu máli. Það liggur fyrir að þetta er hefðbundið innleiðingarmál en Miðflokkurinn hefur gert athugasemdir við gríðarlega háar sektarheimildir eða viðurlög, ekki bara gagnvart lögaðilum sem að þessu máli koma heldur einnig gagnvart starfsfólki fjármálafyrirtækja. Í þessu tilfelli er kveðið á um sektir allt að 650 millj. kr. á hendur starfsfólks verðbréfafyrirtækja, í þessu máli. Það er full ástæða til að gjalda varhuga við innleiðingu á slíkum sektarheimildum án þess að áhrifin sem það hefur á fjármálafyrirtækin og á starfsmenn séu skoðuð. Þetta mun í auknum mæli kalla á mjög umfangsmiklar og dýrar starfsábyrgðartryggingar fyrir starfsfólk.
Að því sögðu styður þingflokkur Miðflokksins þetta mál nú í 3. umræðu en leggur eftir sem áður áherslu á að þessi mál þurfi að hafa í huga í hvert sinn (Forseti hringir.) sem verið er að innleiða slík mál frá Evrópusambandinu.