157. löggjafarþing — 25. fundur, 23. okt. 2025.
Menntasjóður námsmanna.
47. mál
[11:27]
Horfa
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka þinginu fyrir vasklega framgöngu og að hafa greitt fyrir málinu þó að hér hafi komið fram að það séu ekki öll að fara að styðja það. Þetta er mjög mikilvægt mál sem varðar hag námsmanna sem hafa gengið í gegnum erfiða tíma, ekki síst út af háum vöxtum og verðbólgu. Það er þó alveg ljóst, eins og hér hefur komið fram, að það þarf heildarendurskoðun á umhverfinu og ég get fullvissað þingheim um að það verður gert og er þegar hafin vinna við það.