Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég kem hér til að gera grein fyrir sjónarmiðum okkar í Framsókn í þessu máli. Þetta er mjög jákvætt mál, jákvætt fyrir námsmenn, og það var góð vinna í allsherjar- og menntamálanefnd í tengslum við þetta mál. Í umsögnunum sem bárust kom fram mikil jákvæðni í garð málsins en hins vegar alveg skýr skilaboð um að þetta væri gott fyrsta skref og það þyrfti einmitt að endurskoða þetta og fara í heildarendurskoðun. Ég fagna því að hæstv. ráðherra hafi komið hér upp og sagt frá því að sú vinna sé nú þegar hafin, ég fagna því og bíð spennt eftir því að sjá hvernig hæstv. ráðherra tekur á þessum málum. En þetta er jákvætt skref og við í Framsókn munum vera á grænu á þessu máli.