157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

47. mál
[11:28]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér erum við að fjalla um afar jákvætt mál, sérstaklega í því ljósi að ráðherra hefur lýst því yfir að ráðast eigi í heildarendurskoðun á umgjörð Menntasjóðs námsmanna. Þetta er ákveðið tiltektarmál þar sem við erum að auka fyrirsjáanleika, draga úr vaxtabyrði, færa námsstyrki framar í tíma til að styðja betur við námsmenn á Íslandi með það að markmiði að Menntasjóður námsmanna geti með betri hætti náð hlutverki sínu um að vera jöfnunartæki, að tryggja að allir Íslendingar geti sótt sér nám ef þeir kjósa svo, óháð því hvaðan þeir koma og hverjir foreldrar þeirra eru. Ég vil skora á þingheim allan að taka höndum saman og styðja þetta mál því að þó að vissulega væri hægt að gera meira þá er óumdeilt að hér erum við að bæta stöðu námsmanna og ég tel að flokkar ættu ekki að skila auðu í því verkefni.