157. löggjafarþing — 25. fundur,  23. okt. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

47. mál
[11:29]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég kem hér upp til að gera grein fyrir því að þingflokkur Viðreisnar verður að sjálfsögðu grænn í þessu máli og styður þetta mál heils hugar. Líkt og hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson fór hér yfir þá er þetta mál sem snýr að því að skerpa á hagsmunum stúdenta þegar kemur að því að taka námslán. Hæstv. ráðherra hefur boðað heildarendurskoðun á málinu. Það verður enn ein endurskoðunin á málinu, vonandi sú síðasta, vegna þess að stúdentar hafa beðið um árabil eftir fyrirsjáanlegu kerfi sem grípur þeirra veruleika. Það skiptir mjög miklu máli að stúdentar heyri það skýrt hér að við stöndum að baki þeim þegar kemur að grunnframfærslu þeirra og fyrirsjáanleika þegar kemur að lántöku. Það að skerpa á vaxtamálunum er gríðarlega mikilvægt. Fyrra málið var samið í lágvaxtaumhverfi á Íslandi sem er einhvers konar frávik í íslenskri hagsögu og það á ekki að vera viðmiðið fyrir afkomu námsmanna og afkomuöryggi. Þannig að ég styð þetta mál heils hugar og þingflokkurinn allur.