viðhlítandi þjónusta vegna vímuefnavanda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar og ég ætla ekki að eyða dýrmætum tíma eða dreifa athyglinni í þessari umræðu með því að rifja upp eða kýtast um það hvað var gert eða ekki gert á síðustu kjörtímabilum. Það voru reyndar tekin heilmörg mikilvæg skref, m.a. í skaðaminnkunarúrræðum sem hafa algjörlega skipt sköpum, en ég hef verið manna duglegust við það, ásamt fleiri hv. þingmönnum, m.a. sem sitja hér í þessum sal, að benda á að það var ekki nóg gert. Mig langar bara segja eitt, skilaboð til stjórnarliða: Það er ekki endalaust hægt að skýla sér á bak við það að þessi ríkisstjórn hafi ekki lengi verið við völd. Hversu lengi eigum við að fá að heyra þessa línu?
En til að enda þetta á jákvæðum nótum, af því að mér fannst innlegg og athugasemdir hv. þingmanns mjög góðar, þá langar mig að taka undir með hv. þingmanni, hver dagur skiptir máli. Við hér sem sameinumst um það að setja athygli og tíma og orku í þennan málaflokk eigum að taka höndum saman og hreyfa almennilega við þessum málum í þetta skipti.