verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi utanríkisráðherra til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja. Í frumvarpinu er lagt til að ný lagaumgjörð verði sett til framfylgdar ákvæða nýs alþjóðasamnings undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna sem ber sama nafn og frumvarpið, en er í daglegu tali fjallað um sem BBNJ-samninginn.
Forseti. Í aldanna rás hafa miðin umhverfis Ísland verið undirstaða velsældar, uppspretta atvinnuvega og tenging við umheiminn. Þannig er hagur og heilbrigði hafsins um leið hagur íslensks samfélags. Sem ríki sem byggir hagsæld sína að miklu leyti á hafinu hefur Ísland jafnframt ríka hagsmuni af því að tryggja réttarvissu og -öryggi til athafna á hafi úti. Fyrir vikið hefur íslensk utanríkisstefna allt frá lýðveldisstofnun byggst á öflugu fyrirsvari í málefnum hafsins.
Í liðinni viku var þess minnst að hálf öld væri liðin frá því að sérefnahagslögsaga Íslands var færð út í 200 sjómílur frá grunnlínum. Almennur réttur strandríkja til þessarar sérefnahagslögsögu var síðar meir staðfestur í hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna sem Ísland gegndi leiðandi hlutverki í að semja og nýtur nú viðurkenningar sem miðlæg heimild þjóðaréttar um hafið. Vart verður orðum aukin þýðing þessa tímamótaáfanga í sögu lýðveldisins. Með honum vannst fullveldisréttur Íslands til að fara fyrir fiskveiðistjórn á eigin hafsvæði og þar með tryggja sjálfbæra nýtingu auðlinda til skemmri og lengri tíma.
Utan lögsögu gilda önnur lögmál. Hafréttarsamningurinn er tæki til að standa vörð um frelsi úthafsins þar sem öllum ríkjum er frjálst að stunda siglingar, yfirflug, veiðar, vísindarannsóknir og annars konar athafnir. Samráð og samvinna um málefni úthafsins og hafsbotnsins utan lögsögu ríkja er þó nauðsynleg. Ríki eiga nú þegar í víðtæku samstarfi á svæðisbundnum og sviðsbundnum vettvangi um þá starfsemi sem þau stunda á eða nálægt úthafinu. Má þar nefna samstarf á vettvangi svæðisbundinna fiskveiðistjórnarstofnana og gegnum Alþjóðasiglingamálastofnunina.
Með BBNJ-samningnum er í fyrsta sinn komið á fót allsherjarvettvangi sem fjallar um starfsemi ríkja á úthafinu með það að markmiði að tryggja vernd og sjálfbæra nýtingu lífríkisins utan lögsögu ríkja. Í samningnum kemur skýrlega fram að honum er ekki ætlað að grafa undan því alþjóðasamstarfi sem þegar á sér stað utan lögsögu. Sem nýr undirsamningur hafréttarsamningsins gefur samningurinn ríkjum hins vegar ný verkfæri í kistuna sem geta nýst við ábyrga stjórnun hafsins. Hann bætist við þá undirsamninga sem fyrir eru og nefni ég þar sérstaklega úthafsveiðisamninginn.
Efnissvið samningsins eru í fyrsta lagi söfnun og nýting erfðaauðlinda sjávar utan lögsögu ríkja, í öðru lagi svæðisbundin stjórnunarúrræði, svo sem verndarsvæði í hafi, í þriðja lagi mat á umhverfisáhrifum vegna starfsemi á úthafinu og í síðasta lagi samstarf um uppbyggingu á getu og miðlun haftækni til þróunarríkja. Í frumvarpinu er að finna á einum stað ýmis ákvæði sem tengjast framkvæmd Íslands á samningnum. Á grundvelli nýrrar löggjafar, sem sett yrði í samræmi við íslenska lagahefð, mun Ísland í kjölfarið geta fullgilt samninginn.
Forseti. Á alþjóðavettvangi er mikil áhersla á nýja samninginn og væntingar um að hann nýtist til að sporna við hnignun lífríkis hafsins. Þáverandi utanríkisráðherra Íslands undirritaði samninginn sama dag og opnað var fyrir undirritanir, þann 20. september 2023. Fullgildingar hafa gengið hratt fyrir sig og nú hafa 75 ríki fullgilt en 60 þurfti til að virkja gildistökuákvæðið. Samningurinn mun taka gildi hinn 17. janúar 2026 og verður þá boðað til fyrsta þings aðildarríkjanna. Þar verða ýmsar ákvarðanir teknar um málefni samningsins og skipað í þær nefndir sem fara munu með daglega framkvæmd, t.d. rýni á tillögum um verndarsvæði í hafi, og regluverk utan um starfsemi þeirra samþykkt.
Líkt og á við um hvern þann vettvang þar sem málefni hafsins eru til umræðu meta íslensk stjórnvöld það svo að Ísland hafi ríka hagsmuni af því að taka þátt í starfi BBNJ-samningsins. Er þetta jafnframt mat þeirra hagaðila sem skiluðu umsögn um frumvarpsáformin og drög að frumvarpinu þegar þau voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrr í haust. Því er markmið stjórnvalda að Ísland verði fullgildur aðili með atkvæðisrétt frá og með gildistöku. Er því lagt til að ný lög muni taka gildi hinn 17. janúar, til samræmis við gildistöku samningsins sjálfs. Ég vona að þingið gangi hratt og örugglega til verka til að tryggja að fullgilding verði hið fyrsta svo Ísland eigi rödd á vettvangi samningsins frá upphafi.
Forseti. Ég hef gert grein fyrir helstu efnisatriðum frumvarpsins. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. utanríkismálanefndar.