verndun og sjálfbær nýting líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu í þessu ágæta máli. Ég ætla að reifa nokkur sjónarmið. Í fyrsta lagi þykir mér mikilvægt að Ísland taki forystu í því að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni utan lögsögu ríkja til lengri tíma. Frumvarpið, eins og sagði í framsögu ráðherra, innleiðir BBNJ-samninginn sem er lykilþáttur í að styrkja hafréttarsamning Sameinuðu þjóðanna og þetta sýnir að Ísland er virkur og ábyrgur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um málefni hafsins, sem eru okkur auðvitað afar mikilvæg. Markmið laganna er að tryggja verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni. Með þessu erum við að fjárfesta í framtíð hafsins sem er auðvitað forsenda þess að hægt sé að nýta hafið á blómlegan hátt. Verndun utan lögsögu hefur jákvæð og keðjuverkandi áhrif á vistkerfi innan okkar lögsögu einnig. Með lögunum er tryggð skilvirk framkvæmd samningsins og ákvæði hans færð inn í íslenskan rétt. Lögfesting frumvarpsins felur í sér að íslensk stjórnvöld geta beitt íslenskri lögsögu á starfsemi sem lýtur þeirra stjórn á alþjóðlegum hafsvæðum. Það tryggir að Íslendingar sýni ábyrgð sína og fari að reglum um umhverfi og hafsvæðavernd og nýtingu svokallaðra erfðaauðlinda.
Það skal líka tekið fram að frumvarpið er lagt fram til að gera Íslandi kleift að tryggja að fullgilda BBNJ-samninginn og láta hann taka gildi á Íslandi samtímis því sem hann tekur gildi alþjóðlega, sem sagt þann 17. janúar 2026, og það skýrir gildistökuákvæðið. Þetta er mikilvægt skref sem tryggir að Ísland sé frá upphafi meðal fremstu þjóða sem vernda hafið og geta haft áhrif á framkvæmd samningsins frá fyrsta degi. Samþykkt Alþingis er forsenda þess að Ísland geti skilað inn fullgildingarskjali fyrir frestinn í desember 2025.
Um leið og ég fagna þessu framfaramáli þá legg ég áherslu á og óska í rauninni eftir góðu samstarfi í utanríkismálanefnd til að láta þetta mikilvæga mál ná fram að ganga svo Ísland geti tekið þátt í þessu mikilvæga alþjóðasamstarfi frá fyrsta degi.
Forseti. Ég hef lokið máli mínu.