157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

skattahækkanir og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.

[15:09]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er fyrsti húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar. Það liggur fyrir að við erum að leggja okkar af mörkum þegar kemur að því að eyða óvissu á lánamarkaði. Það mun í þessari viku liggja fyrir viðmið sem verður notað og lánastofnanir geta notað til þess að bregðast við þessari óvissu sem upp er komin þegar kemur að veitingu verðtryggðra lána á breytilegum vöxtum. Þessu er ríkisstjórnin búin að komast að í vinnu með Seðlabankanum. Við erum líka búin að festa í sessi tíu ára stuðning á skattfrjálsri séreign þannig að það þarf ekki að taka þá umræðu hér hver einustu áramót.

Auðvitað er það þannig að flestir Íslendingar vilja eiga sitt eigið húsnæði. Ég held að hv. þingmaður sé sammála mér í því og þetta er t.d. ástæðan fyrir því að við erum að víkka út heimildir sem snúa að hlutdeildarlánum. Við erum að setja meira fjármagn í það, við erum búin að tryggja þá fjármögnun þannig að það er hægt að úthluta mánaðarlega í senn sem hefur verið stærsti vandinn við framkvæmd hlutdeildarlána, að það hefur ekki verið fyrirsjáanleiki í kerfinu, ungt fólk hefur ekki getað nýtt sér það kerfi og verktakar hafa ekki getað byggt inn í kerfið. Þetta eru hlutir sem við erum að gera. Þetta mun tryggja framboð.

Við erum líka að tala um að einfalda regluverk. Við erum að fara að sjá stóra einföldun á byggingarreglugerð og þetta er eitthvað sem er búið að vera að kalla eftir í langan tíma. Þetta mun líka gera það hagkvæmara að byggja, auðveldara að byggja, það er verið að einfalda líka ákveðið eftirlit þrátt fyrir að það sé passað upp á að gæðin verði til staðar. Og já, við erum með ákveðin úrræði sem snúast um það og snúa að því að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks, ekki sem fjárfestingavara, að íbúðir nýtist sem heimili fólks. Mér finnst það eðlileg krafa. Þess vegna erum við með Airbnb-frumvarpið hér inni í þessum þingsal. Þess vegna erum við að tala um að íbúðir sem eru ekki til eigin nota fái svipuð gjöld á sig og aðrar fjárfestingar ef fólk er að nýta þær sem fjárfestingarvöru. En við erum fyrst og fremst að auka framboð, lækka verð og auka stöðugleika á íslenskum húsnæðismarkaði.