157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

skattahækkanir og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.

[15:11]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið, svar sem staðfestir það sem ég hef áður sagt: Ríkisstjórnin hafnar tillögum sem hefðu getað hjálpað fólki strax. Það er þeirra pólitíska ákvörðun og þau verða að bera ábyrgð á henni. Ég fagna því að séreignarleið Sjálfstæðisflokksins er fest í sessi þótt ríkisstjórnin hafi nú áður lagt hana niður og ekki gert ráð fyrir henni í fjárlögum. Nú er hún tekin upp aftur en þeir sem hafa þegar nýtt tíu ára heimildina standa eftir án raunhæfrar nýtingar. Ef ætlunin er að gefa raunverulegan fyrirsjáanleika fyrir heimilin þá þarf að hækka mörk eða lengja nýtingartímann. En hvers vegna var ekki tekið upp afnám stimpilgjalda fyrir einstaklinga við íbúðakaup? Af hverju var ekki hækkuð endurgreiðsla virðisaukaskatts af vinnu á byggingarstað til að lækka byggingarkostnað? Af hverju var ekki skipulagslögum breytt til að losa um lóðir og víkka vaxtamörk á höfuðborgarsvæðinu án neitunarvalds? Þetta eru raunverulegar bráðaaðgerðir sem ég nefni hér. Hvar eru bráðaaðgerðirnar sem forsætisráðherra boðaði í vor? Þjóðin bíður enn. Ef ríkisstjórnin vill ná raunverulegum árangri (Forseti hringir.) þá ræðst hún í þessar aðgerðir strax. Þess vegna er eðlilegt að spyrja: Hvers vegna kýs ríkisstjórnin ekki skýrar aðgerðir, lægri kostnað og hraðari uppbyggingu?