157. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2025.

skattahækkanir og húsnæðispakki ríkisstjórnarinnar.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér talar forsvarsmaður minni hlutans sem stöðvaði Airbnb-frumvarpið í vor, sem var risastór bráðaaðgerð í húsnæðismálum. Hér er verið að tala fyrst og fremst fyrir aðgerðum sem ýta undir stórkostlega eftirspurn á húsnæðismarkaði, hafa ekkert með aukið framboð að gera og gera ekkert annað en að auka halla ríkissjóðs. Þetta er ástæðan fyrir því að við erum í þeirri stöðu sem við erum í í dag. Ástæðan fyrir því að við erum í vanda á húsnæðismarkaði er sú að hér áður var ríkisstjórn sem fyrst og fremst var að vinna í eftirspurnarhliðinni, var fyrst og fremst að gefa eftir tekjur eða gjöld án þess að fjármagna það og skapa þannig vítahring vanfjármögnunar ríkissjóðs og skorts á húsnæði. Þessi ríkisstjórn þorir og framkvæmir aðgerðir sem búið er að tala um í áraraðir. Þessi húsnæðispakki sýnir það svart á hvítu að við ætlum að fylgja eftir okkar loforðum og við erum stolt af því.