áhrif húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar á ungt fólk.
Virðulegi forseti. Það er óhætt að segja að það hafi orðið uppnám á húsnæðislánamarkaði eftir dóm Hæstaréttar í máli Neytendasamtakanna gegn Íslandsbanka. Það liggur fyrir að það hefur verið gert hlé á verðtryggðum útlánum. Það er alveg óumdeilt líka að þetta umrót hefur haft mikil áhrif á fasteignakaupendur en þó einkum ungt fólk, Seðlabankinn hefur reyndar nýlega breytt reglum um lánþegaskilyrði en að mínu mati mun sú breyting mjög litlu skila í þágu ungs fólks. Ríkisstjórnin kynnti húsnæðispakka númer eitt í síðustu viku. Það kemur á óvart hversu lítið er vikið sérstaklega að ungu fólki þar. Það eru þvert á móti kynntar aðgerðir sem beinlínis vinna gegn hagsmunum unga fólksins okkar á húsnæðismarkaði, þ.e. þess fólks sem er að kaupa húsnæði í fyrsta sinn. Fjármálaráðuneytið vill að vægi verðtryggingar verði minnkað og hæstv. forsætisráðherra kom inn á það hér áðan og leggur í því skyni til reglu um lágmarkshraða afborgana, þ.e. ráðuneytið vill að menn borgi ákveðið mikið af láninu. Þetta mun auðvitað hafa sömu áhrif og þær reglur sem ég nefndi áðan sem Seðlabankinn hefur haft um ákveðið þak á útlánum til fólks, sem bitnar á ungu fólki sérstaklega. Mig langar að vita hvort hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hafi skoðað t.d. þessa reglu sérstaklega, hvernig hún mun koma við ungt fólk og hvort hún hafi metið áhrifin af þessu.
Ég nefni í þessu sambandi líka að það eru margar reglur sem við erum þessa dagana að innleiða á sviði EES-réttar, m.a. svokölluð CRR III-regla sem vinnur mjög sérstaklega gegn ungu fólki með því að lækka áhættuvog undir 50% lánum en hækka á lánum yfir 50%. Þetta vinnur mjög gegn ungu fólki, mjög. Mér finnst mikilvægt að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra hafi lagt einhverja vinnu í það að skoða þessi mál og áhrif þessa húsnæðispakka auk annarra aðgerða á ungt fólk og ég vil vita hvort það hafi verið gert í hennar ráðuneyti.