áhrif húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar á ungt fólk.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn. Það er margt sem hv. þingmaður segir sem ég get tekið undir. Það er sannarlega þannig að þessi aukning eða rýmkun í sambandi við lánþega, skilyrði og annað slíkt skiptir kannski ekki höfuðmáli en er þó a.m.k. liður í rétta átt. Það er akkúrat það sem húsnæðispakkinn er að gera, að reyna að taka utan um fyrstu kaupendur og þá sem eru efnaminni á markaðnum. Sérstaklega vil ég þá nefna hlutdeildarlánin sem við erum að hækka um 1,5 milljarða og verða um 5,5 milljarðar kr. Hlutdeildarlánin fela það í sér að eftir efnahag mun ríkið í rauninni ýmist gerast 20% eða 30% hlutaðeigandi í íbúð viðkomandi einstaklings. Ríkið mun þó t.d., ef við gæfum okkur góða tölu og segðum 100 milljónir, taka á sig 20–30 milljónir vaxtalaust, afborgunarlaust á meðan eignartími viðkomandi líður. Þannig að það er ekki fyrr en í lokin þegar íbúðin er gerð upp sem ríkið tekur í rauninni til sín sinn hlut, hvort heldur sem húsnæðisverðið hefur lækkað eða húsnæðisverðið hefur hækkað.
Okkur þykir við vera að stíga mjög sterkt inn að vera að setja núna um 13 milljarða kr. á ári ýmist í að styðja við óhagnaðardrifnu leigufélögin með stofnframlagastyrk eða að tryggja hlutdeildarlánin í sessi sem hafa í rauninni verið hálfhornreka í samfélaginu frá því að þau voru sett á laggirnar á sínum tíma þar sem þau vissu ýmist ekki hvort þau voru að koma eða fara því að einn mánuðinn voru hlutdeildarlán og næstu þrjá engin hlutdeildarlán og svo voru hlutdeildarlán. Við í þessari ríkisstjórn erum að tryggja fyrirsjáanleika. Hlutdeildarlán verða veitt í hverjum einasta mánuði. Meginmarkmiðið er að það verði aldrei undir 400 íbúðum á ári sem verði sett inn í kerfi hlutdeildarlána og þetta hlutdeildarlánakerfi gildir út um allt land.